
Nautakjöt
Nautgripirnir
Nautripirnir eru aðallega holdanautgripir af blönduðu kyni sem eru ætlaðir fyrir kjötframleiðslu en einnig elur Mýranaut upp naut af íslensku mjólkurkúakyni.
Á Leirulæk eru um 100 kýr og kvígur sem eru úti allt árið. Kálfarnir fá að vera hjá kúnni í 8-9 mánuði áður en þeir eru teknir inn. Það er mikilvægt að kálfarnir fái mjólk eins lengi og hægt er.
Þegar nautin koma inn þá fá þau ótakmarkaðan aðgang að heyi. Nautgripirnir fá einnig bygg síðustu þrjá mánuðina fyrir slátrun.

Framleiðsluferlið
Mýranaut leggur metnað í að rækta úrvals ungnautakjöt, til þess þarf elju, tíma og þolinmæði.
- Kýr fær við nauti og gengur með kálfinn í rúma 9 mánuði.
- Kýr ber kálfi. Kálfurinn gengur með kúnni.
- Kálfurinn er alinn í 18 - 20 mánuði, til stærðar til slátrunar.
- Síðustu 3 mánuðina er ungnautið alið á byggi.
- Slátrun fer fram í vottuðu sláturhúsi á Hellu.
- Ungnautakjötinu er pakkað í neytendaumbúðir eftir óskum viðskiptavina
- Afurðirnar eru seldar á sveitamarkað og beint frá býli


Njóttu þess besta úr íslenskri náttúru
Íslensk náttúra býður bestu skilyrði til nautgriparæktar. Við nautgriparæktun Mýranauts eru engin aukaefni notuð eða sýklalyf. Nautgripirnir eru aldir á mólk frá kúnni, grasi sem grær á túninu heima og góðu heyi þegar þeir koma inn.
Kalda loftslagið okkar á Íslandi gerir það að verkum að fitusprenging kjötsins verður afbragðsgóð, fullkomið fyrir eldun hvort sem er til steikingar eða grillun.